Færslur maí2008
Nokkrar myndir
Stal nokkrum myndum ad síðunni hjá Ara og Axel úr fermingunni hennar Alexöndru. Þar sem vélin mín er hálfdáin og á ég því engar….
Alla vega sorry Hildur og Sigfús…..lofa að stela ekki fleirum
finnst þessi soldið sæt….við svona í djúpum samræðum
later
aus
Vettvangsnám
Í sumar ætla ég að taka vettvangsnám því það er tilvalið að gera það meðan ég er í fríi. Námið er 2 vikur á stað sem ég hef ekki unnið á áður og þá kom aðsjálfsögðu upp í hugann fyrst Götusmiðjan. Er búin að senda bréf á Vöndu brautarfrú um samþykki á þann stað ef […]
Niðurtalning
já maður er farin að telja niður fyrir Landsmót á Hellu…núna er mánuðir í að vélar séu ræstar og skundað er af stað með tjald, svefnpoka og öl…og ekki endilega í þessari röð :þ
Er búin með garðinn nema að slá. Helv.druslu sláttuvél hefur gefið upp öndina í vetur….hver getur svo sem ljáð henni það…búin að vera úti […]
Meiri garðvinna
Nú er ég búin að kaupa girðingu og grasdúk. Kafaði ofan í ruslagám hérna á Eyrinni og fann þar fínar spónaplötur til að setja á brettin. Svo dúkurinn fari ekki að síga í gegnum raufarnar á brettunum. Þarf að versla smá bút í viðbót og þá er það komið. Svo skelli ég dúknum á og […]
Garðvinna
Það er svo dásamlegt að eiga garð…ég er alsæl núna í garðvinnunni minni. Ég er að fara að fjárfesta í nýrri stærri girðingu sem nær 1.50cm upp í loftið. Hún verður dökkgræn og mjög þétt. Sem þýðir að Brúnó getur hlaupið um garðinn án þess að ég þurfi að hafa áhyggjur af því að hann […]
Hvanndalsbræður
OMG hvað það var skemmtilegt á föstudaginn!!! Það sannaðist eina ferðina enn að þegar maður fer á djamm með þessum gaurum þá verður það alltaf skemmtilegt. Þetta voru líklegast 5-6. tónleikar mínir með þeim
Ég fékk nokkrar myndir lánaðar hjá Birgittu því hún er búin að skella þeim á netið.
Rokkarar!!!!
Jói og Stjáni að tjá […]
Gas
Partý heima hjá mér fyrir Hvanndalsdjamm…..gas þema í gangi!
aus